• Trio Holistic // Róshildur

    9. október kl. 20:00 - Fríkirkjan

    Þriðji dagur State of the Art býður upp á spennandi tvennu. Frábært íslenskt raftilraunapopp og fremstu djassara Evrópu á einu sama kvöldinu í Fríkirkjunni.

    Trio Holistic skipa Veslemøy Narvesen á trommur, Kit Downes á Hammond-orgel og píanó og Ketija Ringa Karahona á flautu. Tríóið steig fyrst á svið á A’LARME hátíðinni í Berlín árið 2023 og leikur sér að mörkum tónsmíða og spuna. Fyrirfram ákveðin stef mynda vörður í ferðalagi þeirra í frjálsum spuna þessarar óhefðbundnu hljóðfærasamsetningar. Samspil tríósins er rafmagnað og óhætt að búast við ýmsum óvæntum uppákomum.

    Þau eru öll virkir þátttakendur í evrópsku tónlistarlífi og koma að fjölbreyttum verkefnum í víðu samhengi. Kit, sem er til mála hjá djassrisanum ECM, hefur fagurfræði plötuútgáfunnar í veganesti en Ketija og Veslemøy sækja sömuleiðis í fjölbreyttan bakgrunn svo öll séu þau reiprennandi í hinu síbreytilega tungumáli samtímaspuna.

    Róshildur er dönsk-íslensk tónlistarkona, pródúsent og flytjandi sem blandar saman melódískum, marglaga söng og áferðarfagurri raftónlist í óhefðbundnum poppstíl. Hún notar lúppur, sömpl og syntha – í bland við takta sem eru meðal annars búnir til úr ískrandi stólum. Hljóðheimur þessi blandast síðan melankólískum en jafnramt kómískum íslenskum textum Róshildar á fullkominn máta.

    Róshildur stígur á svið kl. 20:00 í Fríkirkjunni í Reykjavík og leikur fyrsta sett kvöldsins, en að henni lokinni tekur Trio Holistic við á þessum áhugaverðu tvöföldu tónleikum. Miðaverð er 4.990 krónur, en einnig er hægt að sækja viðburðinn með hátíðarpassa.