State of the Art 2024

Þriðjudagur 8. október

20:00

Miðvikudagur 9. október

20:00

Fimmtudagur 10. október

20:00

Föstudagur 11. október

20:00

Laugardagur 12. október

14:00

Laugardagur 12. október

16:00

Laugardagur 12. október

21:00

Sunnudagur 13. október

16:00



Bríet & ADHD

Norðurljós, Hörpu - 8.10.2024 kl. 20:00


Hvernig hljómar Esjan við undirleik ADHD? Mun Bríet flauta laglínuna í London út eða munu fimmmenningarnir leiða okkur í frjálsum spuna? Svörin við þessu fást á opnunartónleikum State of the Art í Norðurljósum 8. október kl 20 þegar Bríet og ADHD spila saman í fyrsta skipti. 

Tónleikar með hljómsveitinni ADHD eru oftast óvissuferð sem erfitt er að lýsa í orðum. Þeir fjórir sem skipa hljómsveitina mynda slíkan töfraseið með samspili sínu að erfitt er að dáleiðast ekki og fara með þeim í tónferðalag. ADHD samanstendur af Magnúsi T. Eliassen á trommur, Ómari Guðjónssyni á gítar, Óskari Guðjónssyni á saxófón og Tómasi Jónssyni á hljómborð. Sveitin hefur gefið út 8 plötur og spilað um víða veröld á þeim 17 árum sem hún hefur verið virk. Djassklúbbar Evrópu eru títt sóttir af sveitinni en tónlist sveitarinnar snertir á ýmsum stefnum. Hrærigrautur sá sem þeir bera á borð hefur mælst vel fyrir hjá tónlistarunnendum af ýmsum toga.

Bríet skaust upp á stjörnuhimininn þegar hún gaf út sína fyrstu plötu árið 2018 og festi sig svo rækilega í sessi með einni vinsælustu plötu Íslandssögunnar Kveðja Bríet.. árið 2020. Söngkonan og lagahöfundurinn Bríet Isis Elfar er fædd 1999 og er enginn aukvísi ADHD þegar kemur að líflegri sviðsframkomu og eftirminnilegum tónleikum. Hún hefur skapað sér gott orð sem flytjandi af hæsta gæðaflokki og bera sérsmíðaðir turnar, voldugir búningar og töfrandi söngrödd hennar þess vitni. Ýmsir meðlimir ADHD hafa leikið undir hjá Bríeti í gegnum tíðina en aldrei sem ein heild og eru því tónleikar Brítar og ADHD á hátíðinni fyrstir sinnar tegundar og einstakt tækifæri til þess að heyra þessi tvö náttúruöfl leiða saman hesta sína.

Raftónlist? Ísland? - Málþing

Ásmundarsalur - 09.10.2024 kl. 20:00

Aðgangur ókeypis


Hvað er raftónlist? Hvernig hófst hún á Íslandi og hvert er hún að fara? Miðvikudaginn 9. október kl 20:00 verður haldið málþing um raftónlist á Íslandi í Ásmundarsal. Þar mun Bjarki Sveinbjörnsson, doktor í sögu tónlistar á Íslandi, halda erindi um upphaf raftónlistar hér á landi og Þórhallur Magnússon, rannsóknaprófessor í framtíð tónlistar, mun tala um raftónlist í tengslum við gervigreind og fleira.

Auk erindanna verður einnig flutt hið sjaldheyrða verk, DÁIK (Daginn áður en Ingólfur kom) fyrir klarinett, selló og ARP 2600 hljóðgervil eftir Þorkel Sigurbjörnsson. Þórdís Gerður leikur á selló, Magnús Jóhann Ragnarsson á ARP 2600 og Guðni Fransson á klarinett. Bjarki og Thor verða síðan þáttakendur í pallborðsumræðum með Bigga Veiru úr Gusgus og Sölku Valsdóttur úr Cyber og Reykjavíkurdætrum. Fundarstjóri er Atli Bollason.

Að málþingi loknu verður efnt til fögnuðar í tilefni af opnun Þorkelsstofu – vefsíðu sem safnar, varðveitir og miðlar höfundarverki og ævistarfi Þorkels Sigurbjörnssonar tónskálds.


Ævistarf og verkasafn Þorkels er mikilvægur hluti af tónlistarsögu og menningararfi Íslendinga en verkasafn hans telur yfir 300 tónverk, þeirra þekktasta er Heyr, himna smiður.

Raftónlist? Ísland? - Málstofa er ókeypis viðburður í boði State of the Art hátíðarinnar sem haldin er í Reykjavík 8. - 13. Október og Ásmundarsals. Hleypt inn meðan húsrúm leyfir.

Bjarki Sveinbjörnsson starfaði fyrrum sem tónmenntakennari en eftir að hann lauk doktorsnámi sínu 1998 um tónlist á Íslandi á 20. öld með áherslu á upphaf og þróun elektrónískrar tónlistar á árunum 1960-90, hefur hann mestmegnis starfað á fræðasviðinu.

Þórhallur Magnússon er rannsóknaprófessor við Háskóla Íslands og University of Sussex. Hann stýrir Intelligent Instruments verkefninu við Hugvísindasvið Háskóla Íslands. Rannsóknarefni hans eru meðal annars tónlistarflutningur, spuni, ný tækni við tjáningu tónlistar, lifandi forritun, nótnaskrift, gervigreind og tölræn sköpun. Hann hefur gefið út bækurnar Sonic Writing: Technologies of Material, Symbolic and Signal Inscription sem gefin var út hjá Bloomsbury Academic og Live Coding: A User's Manual hjá MIT Press.

Athugið að frítt er inn á þennan viðburð og öll velkomin.

Viðburðurinn er styrktur af Tónlistarborginni Reykjavík.

Tónskáldahringekjan &

Miguel Atwood-Ferguson + Thomas Stankiewicz

Safnahúsið - 10.10.2024 kl. 20:00


Miguel Atwood-Ferguson og Thomas Stankiewicz hittust þegar þeir bjuggu báðir í Los Angeles og tengdu strax við hvorn annan. Sameiginleg ást þeirra á tónlist og sýn á lífið hefur leitt af sér löng símtöl og samtöl í gegnum árin, sem á endanum leiddi þá saman á Íslandi í samstarf fyrir plötu. Á State of the Art hátíðinni í ár gefst gestum tækifæri á að heyra brot af óútgefinni plötu þeirra.

Í tónlistarlífi Los Angeles er Miguel Atwood-Ferguson lykilmaður en undanfarin 20 ár hefur hann starfað þar sem lágfiðluleikari, stjórnandi, útsetjari og margt fleira. Hann hefur fengist við sígilda tónlist, djass, hip hop, spunatónlist, r&b, sálartónlist og starfað með fólki á borð við Dr. Dre, Thundercat, Anderson Paak, Ray Charles, Flying Lotus, Kamasi Washington og Ryuichi Sakamoto svo að nokkur dæmi séu tekin. 

Thomas Stankiewicz lauk bakkalárgráðu í tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands árið 2022 og er feiknarfær gítarleikari. Hann dvalist langdvölum í Los Angeles og Lundúnum og komið sér upp öflugu tengslaneti innan tónlistargeirans. Hann hefur fengist við tónlist af ýmsum toga en hljóðfæratónlist stendur hjarta hans næst. Hann sér um vinsælan útvarpsþátt fyrir NPR radio í Lundúnum sem á sér dyggan hlustendahóp. 


Tónskáldahringekjan hrekkur í gang í Safnahúsinu þann 10. október kl 20. Um borð í hringekjunni eru Ingibjörg Turchi - bassaleikari, Magnús Jóhann Ragnarsson - píanóleikari, Tumi Árnason - saxófónleikari, Björg Brjánsdóttir - flautuleikari, Bergur Þórisson - básúnuleikari og Bergrún Snæbjörnsdóttir - hornleikari. Hvert og eitt þeirra í þungavigtarflokki. Hringekjan fer þannig fram að hver meðlimur semur verk fyrir þann næsta í hringekjunni sem flytur verkið og semur svo annað fyrir næsta kollega þar til við erum komin í hring. Hringekjufararnir koma víða að og hafa fengist við tónlist saman og í sitthvoru horninu og munu því koma með spennandi veganesti í farteski sínu.

Viðburðurinn er styrktur af Tónskáldasjóði Rúv og STEFs.

Miguel Atwood-Ferguson & Elja kammersveit

Fríkirkjan - 11.10.2024 kl. 20:00


Í tónlistarlífi Los Angeles er Miguel Atwood-Ferguson lykilmaður en undanfarin 20 ár hefur hann starfað þar sem lágfiðluleikari, stjórnandi, útsetjari og margt fleira. Hann hefur fengist við sígilda tónlist, djass, hip hop, spunatónlist, r&b, sálartónlist og leikið inn á meira en 600 hljómplötur. Hann hefur starfað með listafólki á borð við Ray Charles, Ryuichi Sakamoto, Stevie Wonder, Quincy Jones, Henry Mancini, Esa- Pekka Salonen, Smokey Robinson, Wayne Shorter, Brad Mehldau, Dr. Dre, Chaka Khan, Erykah Badu, Anderson. Paak, Flying Lotus, Kamasi Washington og Thundercat svo að nokkur dæmi séu tekin.

Undanfarin misseri hefur hann stigið í auknu mæli fram sem sólólistamaður og komið eigin tónlist á framfæri en hann er afkastamikið tónskáld og eftir hann liggja strengjakvartettar, stærri verk, verk fyrir djasssveitir og fleira. Í fyrra gaf hann út sína fyrstu sólóplötu, Les Jardins Mystiques Vol. 1, sem er metnaðarfull 52 laga hljómplata sem fer um víðan völl og skartar framlögum frá mörgum færustu hljóðfæraleikurum heims. Platan hlaut 5 stjörnur í djasstímaritinu Downbeat og var valin besta plata síðasta árs af tímaritinu Guardian sem sögðu hana vera meistarastykki.

Á tónleikum Miguel á State of the Art mun hann stjórna kammersveitinni Elju og flytja sérvalda efnisskrá af verkum sínum. Auk Miguel og Elju kemur einnig kvikmyndargerðarmaðurinn Jesse Gilbert fram. Hann mun sjá um lifandi myndbandsverk á meðan á tónleikunum stendur með forriti sem hann forritaði sjálfur. Gilbert og Ferguson kynntust árið 2012 í Brasilíu þegar þeir unnu báðir með trompetleikaranum Wadada Leo Smith og hafa verið nánir vinir og samstarfsmenn allar götur síðan.

Steingrímur Gauti & Magnús Jóhann

Frjálst flæði

Stúdíó Steingríms Gauta, Krókhálsi 6 - 12.10.2024 kl. 14:00

Aðeins fyrir passahafa


Hvers konar samspil á sér stað þegar píanóleikari og listmálari koma saman? Á vinnustofu Steingríms Gauta verður þetta rannsakað laugardaginn 12. október kl 14 þegar Steingrímur Gauti, listmálari, og Magnús Jóhann, píanóleikari, hyggjast eiga samtal án orða. Magnús mun spinna á píanó í uþb klukkustund meðan Steingrímur annast listsköpun sína í beinu og óbeinu samtali við Magnús. Ætlunin með spunanum er að komast í flæðisástandið sem oft einkennir þær stundir sem eru hvað mest töfrandi í listsköpun. “Allir góðir listamenn mála það sem þeir eru” sagði Jackson Pollock, ameríski abstraktmeistarinn, líklega á þetta við um flesta listsköpun og þá einkum spuna, sem einhverjir gætu sagt eitt tærasta form sköpunar. Staðfærðar hugssjónir Pollock gætu því hljómað einhvernveginn svona: “Allir góðir listamenn skapa það sem þeir eru”

Steingrímur Gauti & Magnús Jóhann - Frjálst flæði er eini viðburður State of the Art sem eingöngu er aðgengilegur hátíðarpassahöfum. Vinnustofa Steingríms Gauta er á þriðju hæð á Krókhálsi 6. 

Steingrímur Gauti Ingólfsson (f. 1986) lauk BA-gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands 2015 og hefur verið virkur á listasviðinu síðan. Hann hefur tekið þátt í samsýningum á Íslandi og erlendis og haldið nokkrar einkasýningar, þar á meðal sýninguna „Chop Wood, Carry Water,“ í Marguo-galleríinu í París. Verk Gauta má finna í opinberum söfnum og í einkaeigu í Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu. Steingrímur Gauti býr og starfar í Reykjavík. Steingrímur Gauti nálgast málverkið af alúð og léttleika, með því að aðskilja sjálfið og fyrirframgefnar hugmyndir frá daglegu sköpunarferli sínu. Verk hans leika með grunnspurningar um myndlist og fagurfræði, eru í senn kraftmikil og lítillát en fjalla í raun ekki um annað en sig sjálf og sjónræn áhrif þeirra á áhorfandann. Ónákvæmni, endurtekning og höfnun gagnrýnnar hugsunar einkenna vinnubrögð hans og útkoman ber þess jafnan merki, þar sem verkin dansa á línu þess ljóðræna og barnslega.

Píanóleikarinn Magnús Jóhann Ragnarsson (f. 1996) hefur frá árinu 2015 hefur verið mjög virkur sem tónlistarflytjandi, tónskáld og upptökustjóri en hann hefur leikið inn á hundruði hljóðrita og kemur fram á fjölmörgum tónleikum á ári hverju. Moses Hightower, Bríet, Ingibjörg Turchi, Aron Can og Bubbi Morthens eru dæmi um samstarfsaðila hans en sjálfur hefur Magnús gefið út fjórar sólóplötur og eina stuttskífu. Auk þeirra gaf hann út dúóplöturnar Án tillits 2021, með Skúla Sverrissyni og Tíu íslensk sönglög 2022, með GDRN. Magnús var valinn tónlistarflytjandi ársins í opnum flokki á Íslensku Tónlistarverðlaununum 2023.

Athugið að viðburðurinn er aðeins fyrir passahafa.

Bjarni á bifreiðaverkstæði

Highland Trucks - 12.10.2024 kl. 16:00


Sígild tónlist á yfirleitt heima í glæstum tónleikahöllum en hljómar hún öðruvísi þegar hún er sett í annað samhengi? Á þessum tónleikum State of the Art mun Bjarni Frímann kanna þetta með því að ferja flygil inn á verkstæði Highland Trucks á Smiðjuvegi 4a og flytja spennandi efnisskrá einleiksverka fyrir píanó.

Tónlistarundrið Bjarni Frímann Bjarnason er ekki eins og fólk er flest. Hann er hljómsveitarstjóri, píanó- og víóluleikari en getur einnig framkallað hljóð sem teljast til tónlistar á næstum hvaða hljóðfæri sem er þegar skyldan kallar. Hann hefur gegnt embætti tónlistarstjóra íslensku óperunnar, sinnt stöðu staðarhljómsveitarstjóra Sinfóníuhljómsveitar Íslands og ferðast um heiminn með Björk sem hljómsveitarstjóri hennar. Nýverið var Bjarni ráðinn sem listrænn stjórnandi hjá Bit20 hljómsveitinni í Bergen.

Bjarni Frímann stundaði fiðlunám hjá Lilju Hjaltadóttur og Guðnýju Guðmundsdóttur og lauk prófi í víóluleik frá Listaháskóla Íslands. Árið 2009 bar hann sigur úr býtum í einleikarakeppni Listaháskóla Íslands og Sinfóníuhljómsveitar Íslands og lék í framhaldinu víólukonsert Bartóks með sveitinni á tónleikum. Í kjölfarið stundaði hann nám í hljómsveitarstjórn undir handleiðslu Fred Buttkewitz við Hanns Eisler-tónlistarháskólann í Berlín. Bjarni hefur komið fram víða um heim, bæði sem strengja- og hljómborðsleikari. Hann hefur stjórnað flestum hljómsveitum á Íslandi við ýmis tækifæri. Þá hefur hann samið tónlist fyrir leikhús og kvikmyndir bæði hérlendis og erlendis. Bjarni Frímann hefur um árabil komið víða fram sem píanóleikari með söngvurum og sem kammertónlistarmaður m.a. í Berlínarfílharmóníunni og Konzerthaus í Vínarborg.

Barokk á klúbbnum

Auto, Lækjargötu 2a - 12.10.2024 kl. 21:00


Hvar sómar sígíld tónlist sér best? Á hljóðfæratónlist barokktímabils 17. og 18. aldar eitthvað erindi inn á næturklúbb? Á State of the Art verður þetta kannað með tónleikunum BAROKK Á KLÚBBNUM þann 12. október kl 21. Nokkur þekktustu verk tímabilsins verða flutt af strengjakvartett og semballeikara í ljósa- og reykvéladýrð næturklúbbsins AUTO á Lækjargötu. En á sviði með strengja og semballeikurunum verður einnig athafnarstjóri trommuheila og rafhljóða sem mun leiða Vivaldi og Bach inn á slóðir 21. aldar og skapa tónavafning sem þú getur hvergi annars staðar heyrt en á State of the Art.

Snorri Sigfús! 70! CAPUT!

Salurinn Kópavogi - 13.10.2024 kl. 16:00


State of the Art lýkur fyrstu sjóferð sinni í Salnum í Kópavogi þar sem Snorra Sigfúsi verður fagnað af vinum hans í CAPUT og öllum sem vilja gleðjast með á lokatónleikum hátíðarinnar. Snorri er frábær píanóleikari og öflugt tónskáld sem hefur skapað sér einstaka rödd með því að sameina hið kunnuglega og formfagra úr íslenska þjóðlaginu við áhrif frá módernistum 20. aldar. CAPUT og Snorri flytja þrjú verk eftir hann á tónleikunum en Snorri kemur einnig til með að leika einleiksverk á píanó.

Á þessum tímamótum lítur Snorri um öxl með því að leika frumleg barnalög eftir brautryðjendur íslenskrar samtímatónlistar, Þorkel Sigurbjörnsson og Leif Þórarinsson, sem ruddu Snorra og kynslóð hans veginn. Tónleikunum lýkur á hinum makalausa Caputkonsert nr 1. sem Snorri skrifaði fyrir sveitina fyrir rúmum tveimur áratugum. Einstakt tækifæri til þess að heyra leikið á mismunandi strengi úr hörpu Snorra. 

Snorri Sigfús Birgisson er fæddur 29. apríl 1954. Hann stundaði píanónám fyrst hjá Gunnari Sigurgeirssyni en innritaðist síðan í Tónlistarskólann í Reykjavík. Þar lærði hann á píanó hjá Hermínu S. Kristjánsson, Jóni Nordal og Árna Kristjánssyni en lagði einnig stund á tónsmíðar hjá Þorkeli Sigurbjörnssyni. Hann lauk einleikaraprófi 1974. 1974-1975 stundaði hann framhaldsnám í píanóleik hjá Barry Snyder við Eastman School of Music í Bandaríkjunum, 1975-76 tónsmíðanám í Osló hjá Finn Mortensen (enn fremur nám í raftónlist hjá Lasse Thoresen og "sonology" hjá Thoresen og Olav Anton Thommessen) og 1976-1978 lærði hann tónsmíðar hjá Ton de Leeuw í Amsterdam. Snorri hefur starfað í Reykjavík sem tónskáld, píanóleikari, tónlistarkennari og stjórnandi síðan hann kom heim frá námi árið 1980. Hann hefur samið einleiksverk, kammertónlist, raftónlist, kórtónlist og sinfónísk verk. 

Kammersveitin CAPUT hefur talsverða sérstöðu í íslensku tónlistarlífi; var formlega stofnuð árið 1988 og hefur frá upphafi sérhæft sig í flutningi samtímatónlistar. Fjölmörg íslensk tónskáld hafa skrifað verk fyrir Caput og hópurinn flutt og hljóðritað mörg meistarastykki eldri tónskálda en einnig frumsmíðar yngstu tónhöfunda. CAPUT hefur tekið virkan þátt í tónlistarlífi Norðurlandanna og Evrópu og er gjarnan talið meðal helstu flytjenda samtímatónlistar í Evrópu og hefur sem íslenskur hópur haft það að leiðarljósi að kynna íslenska tónlist á alþjóðavettvangi.