-

Skúli Sverrisson - 60!
6. október 2026 kl. 20:00 - Fantasía
Bassaleikarinn Skúli Sverrisson hefur fyrir löngu skapað sér nafn sem einn okkar fremsti tónlistarmaður á sviði djass, spuna og tilraunatónlistar. Hann var búsettur í New York um langt skeið og hefur starfað með listamönnum á borð við Lou Reed, Laurie Anderson, Ryuichi Sakamoto, Allan Holdsworth, Blonde Redhead, Jóhanni Jóhannssyni og Hildi Guðnadóttur. Skúli hóf ferilinn sem bassaleikari í goðsagnakenndum íslenskum hljómsveitum á borð við Pax Vobis og hljómsveit Guðmundar Ingólfssonar en hefur einnig getið sér gott orð sem tónskáld með einstaka rödd. Hann hefur átt í farsælu samstarfi við nafntogaða einstaklinga í djassheimum, ber þar hæst að nefna rómaðar samstarfsplötur með gítarleikaranum Bill Frisell og saxófónleikaranum Óskari Guðjónssyni. Skúli hefur einnig samið tónlist fyrir kvikmyndir og leikhús, stýrt plötuupptökum, komið fram á hundruðum hljóðrita og fengist við margt fleira innan tónlistargeirans. Skúli er meðal stofnenda Mengis og hefur verið listrænn stjórnandi staðarins frá upphafi.
Skúli fagnar stórafmæli í október og af því tilefni verður hann heiðraður á opnunartónleikum State of the Art. Aðstandendur hátíðarinnar, Magnús Jóhann, Bergur Þórisson og Bjarni Frímann munu fá sér sæti á sviðinu og leika valin lög af ferli Skúla ásamt tónskáldinu sjálfu á bassa. Auk þess kemur söngkonan Ólöf Arnalds við sögu. Það er af ýmsu að taka og aldrei að vita hvort Skúli varpi nýju ljósi á einhver verka sinna. Tónleikarnir fara fram 6. október kl 20, á Fantasíu við Austurstræti. Miðasala er á tix.is en einnig er hægt að næla sér í hátíðarpassa á State of the Art sem veitir aðgang að öllum tónleikum hátíðarinnar.