-
Plantasía í Garðheimum
11. október kl. 12:00 - Garðheimar
Hafa plöntur áhyggjur? Óttast þær hnattræna hlýnun og vopnvæðingu NATÓ? Þessu veltu vísindamenn og hippar fyrir sér á sjötta áratugnum. Kenningar um meðvitund plöntutegunda náðu vinsældum 1971 eftir útkomu bókarinnar Secret Life of Plants sem hélt því fram að plöntur væru vitsmunaverur. Bók Dorothy Retallack, The Sound of Music and Plants, renndi frekari stoðum undir þessar kenningar en í henni segir Dorothy frá rannsóknum sínum á áhrifum tónlistar á vöxt plantna. Hún heldur því fram að áferðarfögur tónlist af ýmsum toga, örvi vöxt plantnanna.
Einn þeirra sem hneigðist til þessara kenninga var tónskáldið og raftónlistarfrömuðurinn Mort Garson. Árið 1976 samdi hann og hljóðritaði hljómplötuna Mother Earth’s Plantasia á splunkunýtt hljóðfæri, Moog Modular hljóðgervil, en hljómplatan er ein sú fyrsta til þess að vera alfarið gerð með slíku tæki. Tónlistin var gagngert sköpuð fyrir plöntur og ætlast til þess að hún yrði leikin sérstaklega fyrir laufgrænar lífverur heimilinna til þess að örva vöxt þeirra. Á plötunni mátti finna tónsmíðar sem báru titla á borð við Tónlist til að róa indíánafjöður og Veðhlauparasinfónían.
Hljómplata Garson náði ekki miklum vinsældum en eina leiðin til þess að eignast eintak var að versla pottaplöntu í plöntubúð í Los Angeles eða versla sérstaka tegund af rúmdýnu í Sears verslun. En þrátt fyrir að vera óaðgengileg náði hún útbreiðslu meðal aðdáenda raftónlistar og er í dag mikið költ verk í raftónlistarsögunni. Rannsóknir nútímans á tengslum milli tónlistar og vextri plantna hafa ekki beinlínis geta staðfest kenningar Dorothy Retallack og félaga en margt bendir til þess að það séu raunverulega einhver tengsl.
2025, nokkrum áratugum eftir útkomu Plantasíu, slá tónlistarhátíðin State of the Art og Garðheimar höndum saman og bjóða upp á fría tónleika í Garðheimum. Þar verður tónlist Plantasíu flutt af þremur hljómborðsleikurum á forna hljóðgervla af ýmsum toga. Hvort að tónleikarnir munu örva vöxt plönturíkis Garðheima verður að koma í ljós en tónleikarnir fara fram í húsakynnum Garðheima í Álfabakka 6, kl 12 að hádegi þann 11. október. Tónleikar standa yfir í tæpa klukkustund og er aðgangur ókeypis.